Sigríður Thorlacius & Sigurður Guðmundsson
Hátíðartónleikar - Eldborgarsalur Hörpu, fimmtudaginn 17. desember
Miðasala: harpa.is/dagskra/sigridur-thorlacius-sigurdur-gudmundsson-hatidartonleikar-1
Tveir af ástsælustu söngvurum landsins, þau Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, taka aftur höndum saman og slá upp tónleikum í Eldborgarsal Hörpu þann 17. desember. Sigríður og Sigurður munu ásamt hljómsveit sinni reiða fram sérstaka hátíðardagskrá í anda jólanna.
Sigurður og Sigríður héldu þessa hátíðartónleika sína í fyrsta sinn á síðasta ári. Þá komust færri að en vildu á tvenna tónleika þeirra sem hlutu mikið lof. Nú skal leikurinn endurtekinn og ekki er ólíklegt að hér sé komin fram á sjónarsviðið árleg jólahátíðarhefð.
Þau Sigríði Thorlacius og Sigurð Guðmundsson þarf vart að kynna en þau hafa lengi verið á meðal þekktustu og dáðustu söngvara landsins. Bæði hafa þau gert garðinn frægan með hljómsveitum sínum, Sigríður með Hjaltalín og Sigurður með Hjálmum, en jafnframt státa þau af glæstum sólóferlum.
Það eru einmitt tvær hljómplötur þeirra sem verða í forgrunni á tónleikunum í Hörpu – jólaplöturnar Nú stendur mikið til með Sigurði og Jólakveðja með Sigríði. Auk laga af þessum plötum verða á dagskránni hátíðarlög úr öllum áttum sem Sigurður og Sigríður munu syngja bæði saman og í sitthvoru lagi.
Hér verður um einstaka kvöldstund að ræða þar sem reynt verður að nálgast hið sanna og hátíðlega inntak jólanna.
Ещё видео!